Héraðssamband Strandamanna · stofnað 19. nóvember 1944
Héraðssamband Strandamanna var stofnað 19. nóvember 1944, á sjálfu lýðveldisárinu, þegar mikill hugur var í íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni um allt land og héraðssambönd spruttu upp víða. Sambandið hét upphaflega Íþróttasamband Strandasýslu en fékk síðar núverandi nafn. Óstaðfest hvenær nafninu var breytt úr Íþróttasambandi Strandasýslu í Héraðssamband Strandamanna.
Þótt sambandið sjálft sé stofnað 1944 ná rætur skipulagðs íþrótta- og félagsstarfs á Ströndum mun lengra aftur. Ungmennafélagið Gróður í Kollafirði var stofnað 1916, Umf. Hvöt 1920 og Fótboltafélagið Geislinn 1921, sem varð Ungmennafélagið Geislinn árið 1923 — Geisla-nafnið á Ströndum á sér því rætur meira en öld aftur í tímann. Umf. Neisti var stofnað 1924, Umf. Harpa 1925, Umf. Smári í Bitrufirði 1927 og Sundfélagið Grettir 1928. Á fjórða áratugnum bættust við Umf. Efling í Djúpavík og Skátafélagið Hólmherjar á Hólmavík (bæði 1939) og Umf. Leifur heppni í Árneshreppi 1941. Það voru þessi félög sveitanna sem mynduðu grunninn að héraðssambandinu.
Saga HSS endurspeglar byggðasögu Strandanna. Félög urðu til þar sem byggð og atvinnulíf blómstraði og hurfu þegar fólki fækkaði: Umf. Efling í Djúpavík keppti síðast á héraðsmóti 1948 og starfsemin lagðist af laust eftir 1950, þegar síldarævintýrinu lauk. Umf. Reynir í Hrófbergshreppi (framhald gamla Geislans eftir skiptingu Hrófbergshrepps hins forna 1943) keppti síðast á héraðsmóti 1960, Umf. Gróður 1962 og Umf. Smári að líkindum 1965. Ný félög voru stofnuð 1979, Umf. Hnoðri í Bitrufirði og Umf. Kolli í Kollafirði, en þau voru lögð niður 1996 og 2002. Umf. Hvöt, elsta starfandi félagið um langt skeið, var lagt niður 2019 eftir nær aldarlanga sögu.
Á móti hafa ný félög fæðst í takt við nýja tíma: Golfklúbbur Hólmavíkur var stofnaður 1994, Skíðafélag Strandamanna 1999 og Íþróttafélagið Rán 2025. Aðildarfélög HSS eru í dag sex talsins: Umf. Geislinn, Skíðafélag Strandamanna, Umf. Leifur heppni, Umf. Neisti, Golfklúbbur Hólmavíkur og Íþróttafélagið Rán.
Héraðsmót í frjálsum íþróttum hafa verið burðarás í starfi sambandsins frá upphafi og lengi vel helsti vettvangur þar sem félög sveitanna mættust. Lengst af var keppt á Sævangsvelli en frá 2019 hafa héraðsmótin farið fram á Skeljavíkurgrundum. Auk héraðsmóta hefur sambandið staðið fyrir barnamótum, Polla- og pæjumótum, götuhlaupum og boltamótum og tekið þátt í landsviðburðum á vegum UMFÍ og ÍSÍ, þar á meðal Unglingalandsmótum.
Á síðustu árum hefur vetraríþróttastarf sett sterkan svip á héraðið. Skíðafélag Strandamanna hefur byggt upp öfluga aðstöðu til skíðagöngu og skíðaskotfimi í Selárdal, Strandagangan er orðin árviss stórviðburður (sú 31. fór fram árið 2025) og félagið varð Íslandsmeistari félaganna í stigakeppni héraðanna í flokki 13–16 ára ungmenna bæði 2024 og 2025. Vorið 2026 hélt félagið landsmót í skíðaskotfimi þar sem heimafólk vann til fjölda meistaratitla.
Árið 2026 markar svo þáttaskil í sögu sambandsins: í mars var undirritaður samstarfssamningur við Strandabyggð sem meðal annars tryggði ráðningu framkvæmdastjóra í föstu starfi, á 79. ársþingi í maí voru lög sambandsins endurskoðuð í heild og sambandið vinnur að umsókn um viðurkenningu ÍSÍ sem Fyrirmyndarhérað.
Ábendingar um leiðréttingar og viðbætur eru vel þegnar á hstrandamenn@gmail.com.
Héraðssamband Strandamanna · 19. nóvember 1944 –
Frá stofnun Héraðssambands Strandamanna 19. nóvember 1944 hafa að minnsta kosti 23 einstaklingar gegnt formennsku í sambandinu. Vignir Örn Pálsson hefur setið lengst allra, í þremur lotum samtals um sextán ár, og Ingimar Elíasson og Matthías Lýðsson gegndu embættinu einnig oftar en einu sinni. Aðalbjörg Óskarsdóttir varð formaður árið 2006, fyrst kvenna svo vitað sé.