Íþróttir eru vinsælasta tómstundaiðkun barna á Íslandi en um 12 ára aldur stunda rúmlega átta af hverjum tíu börnum íþróttir með íþróttafélagi. Margar ólíkar íþróttagreinar eru í boði og ættu öll börn að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Á Íþróttaþingi árið 1996 var samþykkt stefna í íþróttum barna og unglinga og frá þeim tíma hafa orðið töluverðar breytingar í íþróttaumhverfi barna. Síðan þá hafa sérsamböndin aðlagað og einfaldað keppnisfyrirkomulag í íþróttum barna, fækkað leikmönnum í liðum, minnkað mörk og dregið verulega úr mikilvægi úrslita með því að tilkynna síður úrslit í yngstu aldurshópunum. Samhliða þessum breytingum hefur þátttaka aukist verulega, fjölbreytni er meiri og börn byrja fyrr að stunda íþróttir með íþróttafélögum en áður. Þá er þátttaka foreldra í íþróttum barna mun meiri og væri íþróttastarfið í þeirri mynd sem það er í dag nær ómögulegt án aðkomu þeirra. Menntun þjálfara hefur aukist og aðstaða til íþróttaiðkunar stórbatnað. Barna- og unglingastefnunni til stuðnings hafa Íþróttaboðorðin 10 verið mörkuð.
Þjálfaramenntun ÍSÍ gefur réttindi til íþróttaþjálfunar. Allir nemendur sem ljúka námi á 1. stigi fá staðfestingu á náminu og einkunn. Auk náms á stigunum þurfa þjálfarar að hafa gilt skyndihjálparnámskeið og ákveðna þjálfunarreynslu til að geta haldið áfram námi. Menntun á hverju stigi fyrir sig er ekki lokið fyrr en þjálfari hefur lokið bæði almenna hlutanum hjá ÍSÍ og sérgreinahlutanum hjá viðkomandi sérsambandi. Einnig eru aldurstakmörk inn á námskeiðin; 16 ár á 1. stig, 18 ár á 2. stig og 20 ár á 3. stig.
ÍSÍ sér um almenna hlutann og fer öll kennsla fram í fjarnámi. Sérsambönd ÍSÍ sjá um sérgreinahlutann. Námið er í boði þrisvar á ári, þ.e. sumar-, haust- og vorfjarnám.
Hegðunarviðmiðin eru stuðningsskjal við siðareglur ÍSÍ, til leiðbeiningar fyrir alla aðila innan íþróttahreyfingarinnar.
Hegðunarviðmiðin eru fjórskipt;
Fyrir þjálfara
Fyrir iðkendur
Fyrir starfsmenn og stjórnarmenn
Fyrir foreldra og forsjáraðila
Í hegðunarviðmiðum fyrir þjálfara er gert ráð fyrir þeim möguleika að félag geti látið þjálfara staðfesta að hann hafi kynnt sér viðmiðin og muni vinna eftir þeim. Sambandsaðilar eru hvattir til að nýta sér hegðunarviðmiðin í sínu starfi.
„Sýnum karakter“ er átaksverkefni um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni.